09.05.2008 15:38:31 / einbui
Já Katrín mín þar sem þú ert sjálfsagt sú eina sem ferð á þessa síðu þá ætla ég bara að segja að þar sem þú getur fundið mig er á Facebook og ég nenni heinlega ekki að blogga lengur svo á ég líka 3 email pennavini sem taka allan blogg tíman af mér þannig að já ég er hætt að blogg þar til að ég finn mér tíma til þess. Ta ta
»
25.03.2008 20:54:49 / einbui
Hæ hæ. Jæja þá er Páskarnir búnir og ballið, já þetta ball sem ég ætlaði ekkert á og alls ekki að verða full. Djöfull ég er að verða búin með kvótan. Æi drekka 3-4 á ári. ÁMS hefðu mátt vera aðeins hressari. Þeir voru á einhverju sýru eða eitthvað svoleiðis, alltof rólegir ........... Já interpals shit ég er gjörsamlega húkt á þessari síðu, það fullt af sætum strákum og kræst ég er að tala við sjö sæta stráka frá Englandi, Tyrklandi, Írland og Canada. Reyndar er ég líka komin með nokkra pennavini og það eru allt stelpur frá Þýskalandi, Hollandi, Finnlandi, Belgíu, Skotlandi og Japan. Endilega prófið þið eigið ekki eftir að sjá eftir því, svona ef þið eruð búin að fá nóg af msn og facebook. Jæja Ta ta.
»
16.03.2008 13:29:43 / einbui
Hæ. Ég var að tala við mömmu í gær um Páskaegg og þar sem ég hef ekki efni á því að kaupa mér egg þá ætlar mamma mín að vera svo æðisleg og kaupa handa mér eitt egg. það verður sko ekki Nói og Siríus oj nei Góueggin eru best. Svo varð það annað sem ég fattaði og það er páskafrí, VÁ ég hef ekki fengið páskafrí í MÖRG ÁR ekki síðan ég var í skóla og það eru svona 10-15 ár síðan það var og mig hlakkar geðveikt til. Páskafríið í ár kallast víst Dimbilvika cool. Ok það á að vera eitthvað páskaball hérna og hljómsveitin ÁMS verður að spila en ég er ekki alveg ákveðin að fara en það kemur bra í ljós. Okey þá segji ég Ta ta.
»
12.03.2008 20:09:54 / einbui
Hæ hæ. Ef ykkur langar í pennavini eða svona email vini þá mæli ég með www.interpals.net ég er búin að skrá mig og er búin að græða nokkra vini frá öðrum löndum. Endilega kíkjiði á þetta. Amm ta ta.
»
05.03.2008 19:05:07 / einbui
Já fínt já sæll. Mánudag og þriðjudag var ég veik en ég mætti ég í vinnu og já kannski hefði ég viljað að vera lengur veik því það sem beið mín var ekkert grín

DV ásamt tveimur öðrum auka papírum voru fjölpóstar í dag og er það svo sem ekkert slæmt nema hvað að DV varð að fara út í dag og ekki nóg með heldur í ÖLL HÚS

jeiiiiiiiiiii NOT ég byrjaði rétt fyrir átta í morgun og var búin kl 17:45

og vinnu tíminn minn er bra til 16:15. Allaveganna ætti ég að fá einhverja yfirvinnu fyrir þetta. Ég tek það fram að ég fór ekki í hádegismat, heldur borðaði ég að útburði loknum (hádegismatinn). Ég vildi óska þess að það væru fleiri á staðnum sem myndu ekki vilja þennan HELVÍTIS

fjölpóst á sitt heimili, hann hvort sem er í ruslinu. Þessar verslanir ættu bra að vera með heimasíður um innihald búðarinnar og láta það duga en ekki eyða trjánum svona mikið. Jæja læt þetta duga í bili. Ta ta
»
25.02.2008 18:53:40 / einbui
Hæ. Já ég var reyndar búin að lofa þessu, að blogga um árshátíðina en ég ætla að byrja á föstudaginum. Okey. Við (þá meina ég. Árný, Katrín og ég) lögðum af stað suður kl 14:30 og ég fór hægt eða sem sagt ég keyrði á svona 70-90 km. Þær eru víst báðar bílhræddar Við stoppuðum í Staðarskála og fengum okkur að éta og keyptum smá nammi til hafa með á leiðinni. Við vorum komnar í bæinn kl 18:00 og Katrín gisti í Mosfellsbæ svo að sjálfsögðu varð ég að keyra henni þangað og það var nú meira en að segja það því hún hafði ekki hugmynd hvar vinkona hennar ætti heima en að lokum fundum við staðinn og ég get sagt ykkur það að ég HATA Mosfellsbæ eftir þetta eða kannski er það bara af því að hún rataði ekki. Jæja allaveganna næsti staður var svo Kópavogur eða Hafnafjörður þar sem Árný gisti og sem betur fer þá kom vinkona hennar í móts við okkur í Kópavogi nánar til tekið í Smáratorg. Þegar ég var laus við Árnýju þá var komið að mér að koma mér inní Reykjavík þar sem ég gisti hjá Rakel frænku. Ég tók kvöldið bara rólega og var heima að horfa á TV, við Árný vorum búin að ákveða að fara í hárgreiðslu á laugardeginum og Katrín spurði hvort hún mætti koma með líka og jú jú það var í lagi eftir öll þessi sms spjall okkar Katrína, Árnýjar og míns fór ég að sofa. Ég vaknaði kl 09:00 um morgunninn og skellti mér í sturtu eftir það varð ég að bíða til svona korter yfir tíu þá var óhætt að hringja í Árný og heyra í henni hljóðið. Hún átti tíma í framköllun (eins og hún kallar það) kl 12:30 en sá tími breyttist og hún var beðin um að koma fyrr og þar sem að ég átti að keyra henni varð ég að koma mér af stað inní Hafnarfjörð en gat það ekki strax því Katrín var ekki komin, stelpu greyið (Katrín) varð að taka leigubíl því EKKI ætlaði ég að fara inní Mosfellsbæ og sækja hana en allaveganna kom hún stuttu seinna og við lögðum af stað inní Hafnarfjörð, þegar þangað var komið þá Árný við stjórn völin og keyrði þangað sem hún átti að fara í framköllun. Þegar því var lokið þá fórum við inní Keflavík í hárgreiðslu og það mákona Árnýjar sem greiddi okkur, hún er svo mikið svoleiðis hún Oddný. Við vorum að vísu tíma þrengslum því Katrín varð að vera komin til Mosfellsbæjar fyrir kl 17:00 í eitthvað partý en við náðum því og ég varð að keyra henni einu sinni enn inní Mosfellsbæ og þetta skiptið rötuðum við. Jeeeiiiiiiiiiii. Þegar við fórum frá Mosó fórum við Árný til Rvk og inn á PARK INN hótel Þar sem við fengum að gista enda var ég búin að borga fyrir nóttina, fengum herbergi nr 507 og rukum inn og fórum að skipta um föt og mála okkur, Þegar því var lokið fórum við niður í lobbí og fengum okkur fordrykk sem var í boði hótelsins sem endaði svo með því að Árný fékk mitt glas líka. kl 18:30 komu nokkrar rútur og sóttu okkur og fóru með okkur í nýju fimleikahöllina í Laugardalnum.Þar var rauður dregill þegar þangað var komið og fullt af Póstpúkum. Uppá vegg voru spjöld með nöfnum starfsmanna sem sögðu hvar hverjir ættu að setja og við vorum í Sunset Boluvard (er ekki vist hvort þetta sé rétt skrifað) á borði nr 219.Ég var bara svona létt í glasi og skemmti mér konunglega enda skemmtiatriðin ekki af verri endanum Laddi var veislustjóri og kom í allra handa líki. Garðar Thór kom og söng nokkur lög. Það var dregið í happdrætti en við unnum ekkert. maturinn ar glæsilegur og geggað góður. Páll Óskar kom líka, hann var að hita upp fyrir ÁMS og söng nokkur löga bæði gömul og ný. Við fórum nokkur á Ölver í smá stund og fórum með Limmósíu þangað og þaðan á Hressó í sirka klst. Við Árný fórum að sofa svona upp úr hálf fimm og vöknuðum kl 09:40, slepptum morgunmat á hótelinu og fengum okkur bara Subway í staðin. Katrín fór ekki með okkur heima en í staðin fórum við heim með GLER ÞUNNAR og ungar tátur. Jæja ég bara nenni ekki að skrifa meira og ég nennti ekki að skrifa öll smá atriði, enda verður sjálfsagt hægt að lesa það hjá hinum. Allaveganna. Ta ta
»
21.02.2008 18:31:19 / einbui
Já hæ hæ. Ég ætla bara að skrifa lítið núna. Á morgun fer ég, Árný og Katrín suður, við Árný eru að fara á árshátíð hjá Íslandspóst á laugardagskvöldið og ætla ég að skrifa um hana þegar ég kem heim aftur á Sunnudaginn. Amm ta ta.
»
03.02.2008 22:36:36 / einbui
Hæ hæ. Á föstudagskvöldið var ég bílstjóri fyrir Gumma og Vífil á Jeppanum hans Vífils sem er sjálfskiptur
og keyrði þeim út á Skagaströnd í heimsókn á Bankarstræti og voru þar um svona tólf leitið, allaveganna þá var aðal umræðu efnið Net, bátar og veiðar sem er algjörlega Latína í mínum eyrum. Þegar við fórum var kl hálf fjögur. Við fórum Neðribyggð því Vífill vildi sjá bátinn sem Gummi er á og já ég keyrði útaf, þetta var frekar lúmsk hálka og það munaði reyndar litlu að ég velti helvítis jeppanum en mér tókst að keyra útaf í 35 gráðu halla og vá þetta rifjaði upp eina minningu hjá mér, sem ekki í fyrsta skiptið sem keyri útaf á þessum vegi, en allaveganna þá hringdu strákarnir á Lögguna og hún dróg okkur upp úr. Eftir að Löggan var farin fórum við niður að Bryggju til að skoða bátinn svo rúntaði ég aðeins með þá og fór svo heima. Geggjað ævintýri.
Jæja nóg í bili greyni mín, þangað til næst Ta ta
»
12.01.2008 16:40:30 / einbui
Já Blogg Já. Ég Veit Ekki Hvað Ég Á Að Segja Í Dag Svo Sem, Annað En Ég Fór Til Tannlæknis Fyrir Jól Og Átti Að Hitta Tannsi Á mánudaginn En Komst Ekki Og Heldur Ekki Í Hann. Í Gærkveldi Brotnaði Stykki Úr Fyllingunni Og Núna Í Mogrun Fór Öll Fyllinginn. Það Er Ekki Auðvelt Að Vera Með Holu Og Þurfa Alltaf Að Reka Tunguna Ofan Í. Ég Er Reyndar Með Fluor Tyggjó Ofan Í Tönninni Til Að Lífa Yfir Daginn. Og Það Er Spurnig Hvort Það Virki Eða Ekki... Einhver Önnur Ráð????????????? Já Þetta Er Gott Í Bili. Ta Ta.
»
21.12.2007 16:07:16 / einbui
Hæ. Ég er að laumast til að blogga í vinnutímanum en ég ekki lofað að það sé eitthvað vit í því eins og venjulega hjá mér. Ég er vesta vinkona í heimi eða svona hér um bil aðallega vegna þess að ég nenni ekki að skrifa Jólakort nema til einstakra annars setti ég auglýsingu í gluggan og er þar skráð sem RAKEL bara fyrir þá sem ekki kveikja alveg strax og geta séð gluggann. Æi ég ætlaði að skrifa eitthvað meira en það er alveg dottið úr mér núna, svo að þá segji ég bra Gleðileg Jól og Farsælt Komandi Ár. Þakka allt gamalt og gott. Sjáumst svo hress og kát á næsta ári. P.S. Ég ætlað ekki að blogg fyrr en eftir áramót aftur. TA TA
»
29.11.2007 17:22:30 / einbui
»
25.11.2007 14:15:43 / einbui
Hæ hæ, eftir að hafa verðið húðskömmuð í gær ákvað ég að BLOGGA. Í Oktober kom vinkona mín í heimsókn frá Noregi og í 2 vikur, áður en hún fór aftur vildi hún að ég keypti miða til Noregs til að heimsækja hana og ég gerði það og ætlaði að fara 5 des til 12 des. En núna er hún á leiðinni heim og kemur 1 des til landsins "ÆÐI" EÐA ÞANNIG. Ég ætlaði þá að reyna að breytta miðanum í helgarferð til Skotlands en það er ekki hægt því ég get ekki breytt honum í annað land svo að ég verð að fara í til Noregs, það er bara spurning hvernær??????????????? Í gær kom frændi minn með tvo vini sína til að fara í rjúpu. Þeir höfðu ekkert í gær og um kvöldið fó ég með þá Krókinn á ball á Mælufell til tuttgu mín yfir þrjú og við vorum komin heim kl 04:30 með einu pissustoppi og í morgun kl níu fóru þeir aftur í rjúpu hálf fullir og skelþunnir sjálfsagt hehehehehehehe Það er bara spurnig hvort þeir ná einhverju, samt eftast ég um það. Jæja læt þetta duga þar til næst hvernær sem það nú verður. Bæ bæ.
»
10.10.2007 20:54:09 / einbui
Hæ. Ég fór norður á sunnudaginn því að ég átti að mæta inn á FSA á mánudegi að ég hélt en þegar ég kom þá var ég einum degi of snemma, sem sagt ég átti að mæta á þriðjudegi ÚPPS, jæja skiptir engu. Ég fór í Glerártorg og keypti mér gönguskó fyrir veturinn og eins og venjulega þá er ekkert nauðsýnt frekar ódýrt, nei nei þeir kosturðu bara 9990 kr og voru þeir með þeim ódýrustu, annars var þarna skór á 27000 ef ég vildi.


Ég kíkti aðeins á Ósk vinkonu og frétt að hún er að fara að gifta sig telpan núna á næstunni og mér er ekki boðið reyndar er engum vinum boðið þar sem að þetta er bara fyrir fjölskylduna og ef mig langar alveg rosalega mikið þá verð ég bara að byrja með Rúnari bróður Óskar. Nei nei Ósk mín ég ekki að fara að gera mig að meira fífli en ég þegar er.

Ég vona bara að þið eigið góðan dag og verðið heppin með veður.


Já ég held að það sé komið nóg í bili. TA TA.
»
28.09.2007 22:10:28 / einbui
Já hæ. Ég veit að ég hef ekki verið neitt sérstakkega dugleg að blogga og núna er bara í gangi hjá mér er AMOR (hundur). Hann er í pössun hjá mér og verður til sunnudags, hann kom til mín á miðvikudaginn og er það ekkert grín að pass svona kríli þar sem hann PISSAR utan í allt sama hvað maður reynir að passa það að fara með hann reglulega út þá er alltaf einhverns staðar sem hann getur lumað á tvem þrem dropum og ekki má gleyma skítnum. Nei hann er EKKI kassa vanur.Núna er hann á þeim tíma að fara úr hárum, VÁ djöfull er það mikið. Ég sé það fyrir mér að vera ekki að kvarta undan hárlosi þar sem hann fer 100 sinnum meira en ég, það sést varla í sætin í bílunum mínum fyrir hárum og ég ætla sko að ryksuga hann eftir að Amor er farinn. Ég hef tekið hann með mér í vinnuna og hann hefur labbað með mér um allan bæinn þetta grey enda hefur hann gott af því þar sem hann er OF feitur og núna í dag komst ég að því að ólin hans hefur sært hann svo að hún verður ekki notuð í bráð tja ekki á meðan þetta er að gróa, hann er með tvö lítil sár á bringunni svona beggja megin við framfæturnar. Já jæja þetta er orðið fínt. Bæ bæ.
»
19.09.2007 13:58:55 / einbui
Já ég veit bra ekkert hvað ég á að segja í dag. Ég varð veik um helgina svo að ég komst hvorki í réttir né á ball. Það eina sem ég bíð eftir núna er Laufskálaréttarballið og datið með stelpunum út KS annars ekkert. Búin bæ
»
Síður:
1 2 3 ...
7